Við erum tvær sextán ára stelpur, Ragnhildur Birta og Kristrún Vala, í 10. bekk í Laugalækjarskóla að gera lokaverkefni um íslenskar kynjaverur. Við ákváðum að rannsaka uppruna þeirra og völdum okkur u.þ.b. 10 verur til að rannsaka nánar. Við gerðum könnun og fengum u.þ.b 1100 svör og hjálpaði sú könnun okkur mikið í að átta okkur á þekkingu þjóðarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar er að finna á síðunni okkar. Við fengum fólk á öllum aldri til að svara nokkrum spurningum um þekkingu þeirra á kynjaverum og komumst síðan að því að þeir sem voru undir 18. ára þekktu ekki orðið kynjaverur og fáir þekktu fleiri verur en Lagarfljótsorminn. Okkur tókst að sameina öll fög skólans, íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, náttúrufræði, samfélagsfræði, textílmennt, smíði og myndmennt í gerð lokaverkefnisins.
Hér getur þú tekið könnun og séð hvaða íslenska kynjaskepna þú ert.