KÖNNUN
Trúir þú á íslenskar kynjaskepnur?
Hvað af eftirtöldum íslenskum skepnum þekkir þú/hefur heyrt um?
Við könnuðum almenna þekkingu 1144 manns og tókum það saman í þessi súlu- og skífurit. Við komumst að því að u.þ.b. 50% þáttakanda trúir ekki á kynjaverurnar og að einungis 18% trúi á þær. Einnig fannst okkur merkilegt að flestir þeir sem hafa komið á skrímslasafn Bíldudals trúa á að þessar skepnur séu til. Við komumst líka að því að flestir sem voru yngri en átján ára þekktu oftar en ekki bara Lagarfljótsorminn en ekki aðrar algengar skepnur s.s. Nykur, Fjörulalla og Sæneyti. Fólk sem var eldra en átján trúði frekar á skepnurnar og þekkti margfalt fleiri dýr en þau sem yngri eru. Ef við drögum saman niðurstöður þessarar rannsóknar komumst við að því að þeir sem eldri eru trúa frekar á þessar skepnur og þekkja fleiri dýr en þeir sem eru yngri en átján. Þetta þýðir að það sé að gerast það sem margir þjóðsagnafræðingar óttast. Að fólk sé að missa trúna á þessum menningararfi og að ungt fólk fái ekki næga fræðslu og þekkir ekki þjóðsögur okkar. Það þýðir að við séum að missa brot úr menningu okkar, líkt og við verðum að passa upp á tungumálið verðum við að vernda þjóðsögur okkar. Maður þarf ekki endilega að trúa á skepnurnar, heldur þekkja sögurnar og varðveita þær.