FJÖRULALLI
Fjörulalla er að finna víða með fram ströndum landsins, þó ekki alls staðar. Hann er algengastur á Breiðafirði og Vestfjörðum en dreifist þaðan allt að Hvalafjarðarströnd og jafnvel sunnar og í hina áttina allt austur á norðurfirði Austfjarða og jafnvel lengra. Fjörulalla er ekki að mörgu getið í fornum ritum en kemur fyrst fram á 19.öld. Þá var það 13 ára strákur sem sá hann þegar hann fór út í sker á Breiðafirði. Lýsing hans á Fjörulalla hljóðar svo:
,,Það var á stærð líkt og meðalstór hundur en þó öllu digurra, lágfætt og lubbalegt með rófu líkt og kind. Ekki kvaðst hann hafa getað greint hvort út úr haus þess stóðu eyru eða lítil horn og eigi gat hann heldur greint lögun á skoltum þess því alltaf sneri það afturhlutanum að honum. Þess var getið til að þarna hefði verið fjörulalli…“

,,Hún var svört eða mjög dökk, loðin og lubbaleg, stutt og digur og engin rófa eða hali; segja má að hún hafði verið kassalöguð á skrokkinn. Hálsinn var mjög stuttur, hausinn lítill og hnöttóttur og eins og kýttur við búkinn. Niður úr lubbanum voru fjórir loðnir fætur og ekki hærri en sem svarar þverhönd. Þegar hún hreyfði sig til var göngulagið eða fótaburðurinn ólíkur því sem er hjá landskepnum. Hún bar báða framfætur fram í einu, eins og hún valhoppaði, og þannig vafraði hún frá glugganum nokkuð niður í túnið og lagðist þar aftur.“ – Maður á Búlandshöfða í Eyrasveit á Snæfellsnesi, árið 1934
Báðar þessar lýsingar passa ágætlega við frásagnir annarra. Í sumum heimildum er því haldið fram að húð fjörulalla sé þakin skeljum og hraunkalli og þess vegna skrjáfi í honum. Af því eru dregin auknefnin Skeljalabbi og Skeljalalli. Fjörulalli á einnig nokkur önnur örnefni svo sem: Fjörulabbi, Rauðkálfur, Sæúlfur, Fjörudýr og Lalli.
Óléttum konum var sagt að fara varlega með fram sjónum ef þær skyldu sjá Fjörulalla vegna þess að návist hans gæti farið illa með fóstrið. Vitað er til að Fjörulalli hafi verið skotinn og drepinn, meðal annars í Dýrafirði, og þá með venjulegum höglum, eða þá með steinbítstönnum en þær urðu að vera dregnar úr fiskinum lifandi.